top of page

Hópnámskeið á Selfossi

Lærðu að lesa líkamann þinn

Sensiplan® námskeiðið stendur yfir í þrjá mánuði og hittumst við í fjögur skipti. Hver fundur tekur ca. 2,5 tíma (samtals 10 tímar) og samanstendur af kennslu í bóklegu efni, æfingum og túlkun skráninga þinna. Þú getur einnig fengið aðstoð við úrvinnslu næstu tveggja tíðablaða, óskir þú þess.

Þitt framlag: Á meðan þú lærir Sensiplan® aðferðina og sækir námskeiðið má gera ráð fyrir ca. klukkutíma á viku í bóklegum æfingum, auk 10 mínútna daglega til að skrá niður athuganir þínar.

Staðsetning

Fjölheimum

Tryggvagötu 13

800 Selfossi

Verð

58.000 ísk

 

Innifalið 

  • 10 kennslutímar

  • æfingabók

  • hitamælir

  • gagnamappa

  • ráðgjöf yfir sex mánaða tímabil

Dagsetningar

4 skipti frá 18:30-21:00 

 

Á mánudögum

  1. lota: 29. september 2025

  2. lota: 20. október 2025

  3. lota: 10. nóvember 2025

  4. lota: 1. desember 2025

Skráningarfrestur líður þann 21. september n.k. 

Skráningarfrestur er liðinn!


Sendu mér tölvupóst til að skrá þig á biðlistann.

Ég vil fá fleiri upplýsingar.

Afbókanir og forföll - Hópnámskeið

 

Tilkynna þarf forföll, breytingar og afbókanir með að lámarki átta daga fyrirvara áður en hópnámskeið hefst til þess að forðast forfallagjald.

 

Ef tilkynning berst innan þess frests er greitt fullt verð fyrir námskeiðið.

 

Ef þátttakandi missir af tíma er ekki hægt að tryggja að honum verðir komið fyrir í öðrum hóp.

Sérstök skilyrði sem gilda um stöðluð Sensiplan® námskeið

Staðlað Sensiplan® námskeið til getnaðarvarna spannar fjóra fundi á þremur mánuðum. Æskilegur tími milli funda eru tvær til fjórar vikur. Ef meira enn sex vikur líða milli funda þarf mögulega að áætla fimmta fund sem er ekki innifalið í námskeiðsgjaldinu. Greitt er aukalega fyrir þann fund (30.000 ísk, júlí 2025).

Berit(4of6)-2.jpg

Hormónalaus getnaðarvörn
&
valdefling

bottom of page