Tíðahringurinn

© wix.com
During the follicular phase, sperm find perfect conditions in the vagina and uterus for survival about 3-5 days.
Almennt er tíðahringnum skipt í fjóra fasa – blæðingar, eggbúsfasa, egglos og gulbúsfasa. Á bak við þessu síendurteknu ferli er magnað samspil margra líffæra. Hér á eftir köfum við dýpra í atburðir og einkenni hvers fasa.
Hlutverk tíðahrings
Helsta hlutverk hvers tíðahrings er undirbúningur fyrir mögulega þungun, sem felur í sér að hýsa sæði, losa egg og breyta legslímu.
Þessum ferlum er stjórnað af mismunandi hormónum og ganga þeir einnig mikilvægu hlutverki í líkamlegri heilsu og allmennri vellíðan leghafans.
Egglos
Egglosið er lykilatriði hvers tíðahrings og markar jafnframt ákveðið tímamót þar sem flest lífmerki birtast öðruvísi fyrir og eftir egglos. Einnig getur frjóvgun átt sér einungis stað þegar egglos hefur átt sér stað. Það er afleiðing keðjuverkunar sem tengist fjórum hormónum og eru framleiddir annaðhvort í heilanum eða eggjastokkunum.
Aðalleikararnir eru framleiddir í eggjastokkunum og heita
Estrógen og
Prógesterón
Heiladingullinn (hluti af heilanum) framleiðir:
FSH (eggbúsörvandi hormón)
LH (gulbúsörvandi hormón)
Hér getur þú lesið ýtarlega um egglos.
Upphaf tíðahrings
Engu að síður er erfiðara að rekja egglos en tíðablæðingar. Þess vegna er fyrsti dagur blæðinga skilgreindur sem upphaf tíðahrings en hann lýkur deginum fyrir næstu blæðingar.
Nýr tíðahringur hefst alltaf sem svar við skilaboðunum „engin þungun greind“ í fyrri hring.
Fyrsti dagur blæðinga er fyrsti dagurinn með fersku, rauðu blóðflæði og þörf fyrir hreinlætisvörur. Margir leghafar verða varir við blettablæðingar einum eða tveimur dögum áður en tíðablæðingar hefjast að fullu og eru þeir dagar enn taldir hluti af fyrri tíðahring.
Lengd tíðahrings
Heilbrigður tíðahringur varir á milli 23 og 35 daga (TILVITNUN). Í fræðsluefni og á skýringarmyndum finnst oftast sú staðhæfing að eðlilegur tíðahringur samsvari alltaf 28 daga hringnum. Nokkrar rannsóknir hafa sýnt að aðeins um 13% allra tíðahringja eru nákvæmlega 28 dagar að lengd (TILVITNANIR, Sensiplan).
Rannsókn Soumpasis, Grace, Johnson, 2020 (TILVITNUN) sýnir að innan við 1% leghafa hefur sömu lengd tíðahrings í fjóra hringi í röð, en 52% upplifa 5 daga eða meiri breytileika í lengd tíðahrings í fjóra hringi í röð.
Áhrifaþættir á lengd tíðahrings
Mismunandi lengd tíðahringsins má rekja til innri og ytri þátta.
Innri þættir, eins og aldur og heildarhormónajafnvægi einstaklingsins, hafa langtímaáhrif á lengd tíðahringsins.
Aftur á móti valda ytri þættir eins og streita, veikindi, breytingar á venjum, ferðalög, lyf eða líkamleg álag skyndilegum áhrifum sem oftast sjást aðeins á yfirstandandi tíðahring.
Dagarnir fram að egglosi eru viðkvæmari fyrir áhrifum sem endurspeglast í heildarlengd tíðahringsins. Framleiðsla estrógens hægir á sér og það tekur lengri tíma fyrir hana að ná því þröskuldsgildi sem kemur egglosi af stað. Þessu ferli er lýst nánar hér að neðan.
Tíðahringur hvers leghafa er byggður á sama ferli óháð lengd hringsins:
engin þungun ➜ undirbúa egglos ➜ egglos ➜ undirbúa þungun
➜ engin þungun = þrífa og undirbúa aftur egglos
Upplýsingamiðlun í líkamanum
Upplýsingamiðlun í líkama leghafa byggir á stöðugum samskiptum milli heila, eggjastokka og legs, einnig þekkt sem undirstúku-heiladinguls-kynkirtlaásinn (HPG-ásinn) (fyrir ítarlega útskýringu á virkni hans, lestu meira hér).
Í hverjum tíðahring eiga sér stað samskipti á þremur leiðum samtímis, öll stjórnuð af aðalleikurunum estrógeni og prógesteróni:
Hér á eftir er hringrásunum lýst hverri fyrir sig; þó er í raun ekki hægt að aðskilja þær þar sem þær eru náskyldar í virkni sinni og tengjast sömu hormónum.
Eggjastokkshringrás
Hringrás eggjastokka vísar til hormónaframleiðslunnar sem á sér stað í eggjastokkunum.
Henni er skipt í tvo einkennandi fasa – eggbúsfasa og gulbúsfasa.
Eggbúsfasinn hefst á fyrsta degi tíðahringsins og lýkur með egglosi og gulbúsfasinn hefst með egglosi og lýkur með upphafi næstu tíðablæðinga.

Eggjastokkshringrás - Eggbúsfasinn
Eggbúsfasinn hefst með hækkandi magni FSH sem örvar hóp eggbúa í eggjastokkunum til að þroskast og stefna að egglosi.
Þegar eggbúin þroskast keppa þau sín á milli um að verða ríkjandi eggbú.
Fyrsta eggbúið sem nær fullum þroska byrjar að framleiða mikið magn af estrógeni, sem hindrar vöxt hinna eggbúanna.
Eina eggbúið sem nær fullum þroska í þessu ferli og er eggbúið sem losnar við egglos er kallað Graaf-eggbú. Graaf-eggbúið heldur áfram að framleiða estrógen.
Þegar estrógenmagn hækkar fer það að lokum yfir ákveðna þröskulda, en þá örvar það LH-framleiðslu, sem leiðir til hámarks í LH-magni. Samtímis hækkar FSH-magn aftur í stuttan tíma.
Mikið magn LH veldur því að himna Graaf-eggbúsins verður þynnri og auðveldari að rjúfa.
Innan 24-48 klukkustunda frá LH-toppnum á egglos sér stað: Eggbúið rofnar og losar eggfrumuna.
Næst losnar eggfruman úr eggjastokknum og er gripin af eggjaleiðaranum með eggjaleiðarakögrum (fingurlaga strúktúrum).
Eggjastokkshringrás - Gulbúsfasinn
Þegar egglos hefur átt sér stað örva LH og FSH eggbúsvefinn sem eftir er af Graaf-eggbúinu til að þróast í gulbúið, en gulur er einkennandi litur sem gefur þessum fasa nafnið sitt.
Gulbúið framleiðir hormónið prógesterón.
Ef engin frjóvgun á sér stað lifir gulbúið í 10-12 daga áður en það byrjar að hrörna. Þegar hrörnunin hefst lækkar prógesterón- og estrógenmagn snögglega sem leiðir til þess að tíðir hefjast og nýr hringur byrjar.
Samtímis, vegna skyndilegrar lækkunar á prógesteróni og estrógeni, hækkar FSH-magn lítillega. Þessi litla hækkun á FSH er talin vera hvatinn fyrir nýjan hóp eggbúa til að hefja þroska.
Lengd gulbúsfasa er nokkuð stöðug, venjulega 12 til 16 dagar, óháð heildarlengd tíðahringsins.
Ef frjóvgun á sér stað
Þegar eggfruma er frjóvguð byrjar hún að framleiða vaxandi magn af hCG (æðabelgsgónadótrópín, e. human chorionic gonadotropin).
hCG er nauðsynlegt til að viðhalda þungun þar sem það kemur í veg fyrir hrörnun gulbúsins sem heldur áfram að framleiða prógesterón og stöðvar blæðingar.
Þegar fylgjan hefur náð þroska (frá um 8 vikum meðgöngu) tekur hún að lokum yfir hlutverk hCG og gulbúsins.
Heimaþungunarpróf mæla hvort hCG sé til staðar og sýna jákvætt þegar ákveðnum þröskuldi hefur verið náð. hCG-magn eykst með lengd þungunar og er ekki alltaf hægt að greina það með heimaþungunarprófi á fyrstu dögum.
Fyrir nákvæma útskýringu á frjóvgun, lestu meira hér.
Hringrás legsins

Legið hefur sína eigin hringrás, sem er knúin áfram af sömu hringrásarlosun estrógens og prógesteróns og fjallað var um í eggjastokkahringnum.
Innri hlið legsins er kölluð legslíma og samanstendur af tveimur lögum:
-
Legslímhúð: hún þykknar við fyrirmæli estrógens og prógesteróns og losnar við blæðingar
-
Grunnlag: það myndar grunninn sem legslímhúð þróast úr en losnar ekki.
Hringrás legsins hefur þrjá fasa sem eru þekktir sem blæðingar-, fjölgunar- og seytisfasi.
Hringrás legsins - Blæðingarfasi
Í lok gulbúsfasa, ef engin hreiðrun hefur átt sér stað, hrörnar gulbúið.
Tap á gulbúinu leiðir til minnkaðrar prógesterónframleiðslu.
Lækkandi magn prógesteróns veldur því að gormæðar í legslímhúð dragast saman og takmarka blóð- og súrefnisflæði. Fyrir vikið losnar húðin og fer út um leggöngin sem blæðingar.
Hringrás legsins - Fjölgunarfasi
Í fjölgunarfasa örvar hækkandi magn estrógen uppbyggingu og vöxt legslímhúðar, sem gerir henni kleift að jafna sig eftir nýafstaðnar blæðingar.
Ferlið felur í sér aukna þykkt legslímhúðar, æðamyndun og fjölgun seytikirtla.
Hringrás legsins - Seytisfasi
Seytisfasinn hefst þegar egglos hefur átt sér stað.
Á þessum fasa, vegna hækkandi magns prógesteróns, þróast legslímhúðin í stuðningsríkt og næringarríkt umhverfi sem er móttækilegt fyrir hreiðrun frjóvgaðrar eggfrumu.
Ef hreiðrun á sér stað og fósturvísir þroskast, breytist leghálshúðin í fylgju (sem tekur um 8-10 vikur) og verður að lokum meginaðilinn í að viðhalda þunguninni.
Hringrás í töflu
Sú tafla sýnir breytingar í eggjastokkunum og leginu, eins og þær eru útskýrðar fyrir ofan. Einnig sést breytingar á hormónum fjórum; estrógen, prógesterón, LH og FSH.

Leghálshringrás
Leghálsinn er tengiliður milli legs og legganga. Innra op hans er kallað leghálsgöng.
Leghálsgöngin eru klædd kirtillíkum dældum, grafir, sem framleiða leghálsslím.
Leghálsslím losnar út um leggöngin og leghafinn getur séð og/eða fundið fyrir því. Það samanstendur að mestu af vatni, næringarefnum eins og sykrum, steinefnum og próteinum, ensímum og hvítum blóðkornum.
.png)
Eins og í hringrás eggjastokka og legs hafa aðallega hormónarnir estrógen og prógesterón áhrif á atburði í hringrás leghálsins.
Leghálshringrás - Frjósamt slím-fasi
Hækkandi estrógengildi fyrir egglos eykur magn leghálsslímsins sem og breytir áferð þess vegna hærra vatnsinnihalds svo það verður gegnsærra og teygjanlegra.
Slímið fyrir egglos gegnir mikilvægu hlutverki í lífvænleika sæðisfrumna þar sem það eykur hreyfigetu, veitir næringu og þjónar sem sía fyrir sterkustu sæðisfrumurnar. Að auki breytist sýrustig legganga og verður hlutlausara sem tryggir að sæðisfrumur geta lifað af.
Verndaðar af þessu frjósama umhverfi geta sæðisfrumur lifað í allt að 5 daga og beðið eftir egglosi.
Leghálshringrás - Stíflaður legháls-fasi
Vegna hækkandi prógesterónmagns og lækkandi estrógenmagns skömmu eftir egglos breytist uppbygging slímsins í þéttan tappa sem myndar áhrifaríka hindrun fyrir sæðisfrumur.
Samtímis lækkar sýrustig legganga eða verður súrara sem skapar fjandsamlegt umhverfi fyrir sæðisfrumur.
Við blæðingar losnar tappinn með blóðflæðinu, en hann getur þó myndast aftur og komið í veg fyrir að sæðisfrumur komist inn í leghálsinn á meðan estrógenmagn er lágt.
Samantekt um áhrif hormóna
.png)
Estrógen - framleitt aðallega í eggbúinu sem rofnar við egglos
-
endurbyggir starfhæfa legslímhúð eftir blæðingar
-
eykur gæði og magn leghálsslíms
-
breytir leggöngunum í lífvænlegt umhverfi fyrir sæðisfrumur
Prógesterón - framleitt af leifum eggbúsvefsins eftir egglos
-
þróar legslímhúðina í næringarríku og styðjandi umhverfi
-
þykkir leghálsslímið
-
breytir leggöngunum í fjandsamlegt umhverfi fyrir sæðisfrumur
-
hækkar grunnlíkamshita (ekki hluti af umræðunni hér að ofan)
Heimildir
