Persónuverndarstefna
Almennt
Persónuverndarstefna Flæðarmál er byggð á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Flæðarmál leitast við að fylgja í öllu þeirri löggjöf og ekki vinna með persónuupplýsingar ef heimild til slíkrar vinnslu er ekki til staðar. Berit Mueller er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustuna.
Með því að opna og/eða nota heimasíðuna og/eða bóka viðtal, fyrirlestur eða námskeið samþykkir þú persónuverndarstefnuna og þær breytingar sem kunna að verða á henni.
Ef spurningar eða áhyggjur vaknar hafðu samband í gegnum tölvupóst berit@flaedarmal.is .
Persónuupplýsingar og vinnsla þeirra
Upplýsingar eru persónuupplýsingar ef þær auðkenna tiltekin einstakling eða hægt væri að nota þær til að persónugreina tiltekinn einstakling.
Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar eru unnar, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki. Ekki er unnið með persónuupplýsingar, nema þegar slíkt er heimilt eða skylt skv. lögum. Þá eru persónuupplýsingar varðveittar á formi sem tryggir að ekki sé unnt að persónugreina skráðan einstakling lengur en þörf er á í samræmi við tilgang vinnslu upplýsinganna.
Tegundir upplýsinga sem unnið er með:
• Nafn
• Kennitala
• Heimilisfang
• Símanúmer
• Netfang
• Samskiptasögu
• Bókhaldsgögn
• Greiðslusaga
Tegundir viðkvæmra upplýsinga sem unnið er með:
• Hjúskaparstaða
• Fjölskylduáætlun
• Notaðar getnaðarvarnar
• Reynsla af frjósemislæsisaðferðum
Tilgangur og heimild til vinnslu persónuupplýsinga
Berit Mueller notar persónuupplýsingar í þeim tilgangi
• að efna samning um veitingu ráðgjafaþjónustu.
• að veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf.
• að tryggja að viðkomandi hefur skilið Sensiplan aðferðina og notar hana í samræmi við markmið sitt um fjölskylduáætlun.
Vinnsla á greiðsluupplýsingum er nauðsynleg til að geta greitt fyrir þjónustu Berit Mueller ef og þegar við á.
Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um fyrir vinnslunni í þágu ofangreindra markmiða.
Varðveisla Persónuupplýsinga
Flæðarmál leitast við að öryggi persónuupplýsinga sé tryggt með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum sem hindri ólögmæta vinnslu og því að gögn glatist eða breytist fyrir slysni. Ef upp kemur öryggisbrestur er hann tilkynntur til persónuverndar og einstaklingum er atvikið varðar þegar við á.
Til að veita bestu mögulegu upplýsingar ráðfærir Berit Mueller sig reglulega við aðra fagaðila varðandi einstakra mála þeirra skjólstæðinga sem hún vinnur með. Þessum ráðgjöfum er háttað þannig að trúnaður sé gætt eftir bestu getu.
Réttur einstaklings til aðgangs að persónuverndarupplýsingum
Einstaklingur getur skv. lögum átt rétt á aðgangi eða afriti af þeim persónuupplýsingum sem Flæðarmál hefur um hann. Slíkar upplýsingar verða veittar óski hann eftir þeim.
Réttur einstaklings til leiðréttingar
Einstaklingur á rétt á því að fá persónuupplýsingar sínar leiðréttar séu þær rangar.
Réttur einstaklings til eyðingar og takmörkunar á vinnslu persónuverndarupplýsingum
Í ákveðnum tilvikum getur einstaklingur átt rétt á því að persónuupplýsingum um hann verði eytt eða vinnsla þeirra takmörkuð. Ef viðskiptavinir hafa veitt samþykki sitt fyrir söfnun persónuupplýsinga geta þeir hvenær sem án skýringa dregið slíkt samþykki til baka. Viðkvæmum persónuuppýsingum verður eytt þegar þjónustan lýkur. Einstaka upplýsingar geta verið geymdar lengur ef sérstakar reglur gilda t.d. skatta- eða bókhaldslög.
Beiðni frá þriðja aðila
Ef þriðji aðili óskar eftir upplýsingum fyrir hönd einstaklings, fer fram á eyðingu eða leiðréttingu á upplýsingum skal hann hafa skýrt undirritað umboð um heimild eða hafa heimild skv. lögum.
Kvörtun til persónuverndar og lögsaga
Ef einstaklingur telur að meðferð persónuupplýsingar hafi ekki verið skv. lögum þá hefur einstaklingur rétt á að leggja fram kvörtun til persónuverndar.
Rísi upp ágreiningur um persónuverndarstefnuna skulu aðilar reyna eftir fremsta megni að ná sáttum um þann ágreining en að öðrum kosti skal málið rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Allan ágreining um þessa stefnu skal leyst úr eftir íslenskum lögum.
Breytingar á persónuverndarstefnunni og umsjónarmaður
Flæðarmál áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er og taka slíkar breytingar gildi án fyrirvara við birtingu breytinganna á vefsíðunni
Umsjónarmaður persónuverndarstefnunar og eftirfylgni með henni hefur Berit Mueller. Hægt er að hafa samband við hana á netfangið berit@flaedarmal.is eða í síma +354 699-7812.
Síðast uppfært í október 2025.